815 Þorlákshöfn
Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) Finnsbúð 18, Þorlákshöfn. Stórglæsilegt 192,4m2 steinsteypt einbýlishús ásamt 37m2 bílskúr.
FASTEIGNIN ER SELD en er í fjármögnunarferli fram til 27. apríl 2018.
Húsið er laust til afhendingar!
Húsið er skemmtilega staðsett í endabotnlanga í jaðri byggðarinnar.
Húsið skiptist svo:
* Forstofa með flísum á gólfi og stórum skáp.
* Inn af forstofu er gestasalerni með hvítri innréttingu og upphengdu wc. Flísar á gólfi og hluta veggja.
* Stofa og eldhús eru í einu stóru, opnu rými með harðparketi og flísum á gólfi.
* Í eldhúsi er falleg eldhúsinnrétting úr eik og dökkum við , með stórri eyju.
* Úr eldhúsinu er utangengt á yfirbyggða verönd.
* Í stofu eru stórir og miklir gluggar á suðurhlið hússins og einnig stór horngluggi sem tryggir útsýni yfir sjóinn.
* 4 stór svefnherbergi með harðparketi á gólfi. Góðir skápar eru í hjónaherbergi og 2 barnaherbergjum.
* Svefnherbergisgangur er með sjónsteyptum vegg og innfelldri lysingu.
* Af svefnherbergisgangi er utangengt á yfirbyggða verönd.
* Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, fallegri innréttingu úr eik, upphengdu wc, baðkari og sturtu.
* Þvottahús er flísalagt.
* Bílskúr er fullfrágenginn og með flísum á gólfi.
* Að utan er húsið með sjónsteypu, Á þaki hússins er dúkur.
* Garðurinn er uppgróinn með stórri hellulagðri verönd. Glæsilegt útsýni til sjávar.
{{type.name}}
{{type.distance | portalLocalityDistance}} , {{type.travelTime}}