801 Selfoss
Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir: Hólsbraut 21, Grímsnes- og Grafningshreppi.. 193,2m2 parhús á fallegum útsýnisstað í Grímsnesi.
Nánari lýsing :
* Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
* Eldhús með flísum á gólfi og ágætri eldhúsinnréttingu.
* Stofa með flísum á gólfi.
* Borðstofa með flísum á gólfi og hurð út á lóð.
* 4 svefnherbergi, parketi á gólfi og öll með fataskápum.
* Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, góð innrétting, baðker og sturta. Flísar á veggjum eru skemmdar eftir jarðskálfta og þarfnast endurnýjunar.
* Þvottahús er flísalagt
* Í enda bílskúrs er flísalögð geymsla.
* Bílskúr, eftir er að fullmála hann og setja á gólfin.
Rakaskemmdir eru í parketi og víða á útveggjum. Lagfærða þarf einangrun í húsinu, mikil kuldaleiðni er í úthornum á húsinu sem veldur raka og myglumyndun á mörgum stöðum. Sturta lekur inn í vegg, flísar brotnar í veggjum á baði, hurð og hurðakarmar ónýtir.
ÍLS mælir með fagmanni að skoða eignina og mynda lagnir. Ekki er vitað um ástand eldhústækja.
{{type.name}}
{{type.distance | portalLocalityDistance}} , {{type.travelTime}}