801 Selfoss
Fasteignasala Suðurlands (s 483-3424) kynnir: Fallegt sumarhús í landi Holtakots í Bláskógabyggð. Húsið stendur á glæsilegu, skógi vöxnu 5,8ha eignarlandi sem að liggur að Tungufljóti. Beitarhólf er fyrir 3-5 hesta í sumarbeit. Húsið er í ca 1klst. akstursfjarlægð frá Reykjavík.
Húsið er 36,9m2, hannað eins og stúdíóíbúð og með áfastri 6m2 útigeymslu.
Frábærir möguleikar eru til viðbyggingar/stækkunar.
Eignin telur:
Stofu, eldhús og svefnherbergi í opnu rými. Hægt er að loka herbergið af. Í eldhúsinu er hvít innrétting. Flísar eru á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, hvítri innréttingu undir og yfir vask og sturtuklefa.
Húsið er á steyptum grunni með gólfhita sem er kynntur með rafmagni. Hægt er að fá heitt vatn frá Bergstaða hitaveitunni .
6m2 útigeymsla er við enda hússins.
Sólpallur við húsið er rúmlega 60m2 að stærð.
** Sjón er sögu ríkari - allar nánari upplýsingar veittar og jafnframt hægt að bóka skoðun hjá Fasteignasölu Suðurlands í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com.
{{type.name}}
{{type.distance | portalLocalityDistance}} , {{type.travelTime}}