- Verð: 32.900.000
- Verð á fm: 77.778
- Stærð: 423 m2
- Tegund: Raðhús/Parhús
- Samtals Herbergi: 4
- Baðherbergi: 2
- Stofur: 1
- Svefnherbergi: 3
- Laufey Ásgeirsdóttir

- Fasteignasala Suðurlands
- Sími : 6637199
- Skrifstofa : 6637199
- Netfang : fastsud+laufey@gmail.com
Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu: Eyjahraun 36, Þorlákshöfn. Vel staðsett 117,4m2 parhús ásamt 10,8m2 útigeymslu sem breytt hefur verið í herbergi, auk 19.2m2 bílskúrs. Húsið er skemmtilega staðsett í jaðri byggðarinnar með ekkert hús á bakvið ( stofumegin)
** Skipti á 4 herbergja íbúð í efra-Breiðholti eða Árbæ kemur til greina. * Allar nánari upplýsingar eru veittar og jafnframt hægt að bóka skoðun í síma 483-3424 og á fastsud@gmail.com
Eignin skiptist svo:
* Rúmgóð forstofa með skáp. Gólf dúklagt. * Geymsla inn af forstofu. Gólf dúklagt og hillur á veggjum * Lítið wc inn af forstofu.Gólf dúklagt. * Á tiltölulega einfaldan hátt er hægt að útbúa 5 . svefnherbergið með sameiningu gestasalernisins og geymslunnar. * 3 rúmgóð svefnherbergi með dúkum á gólfi. Skápar eru í hjónaherbergi og á svefnherbergisgangi. * Baðherbergi með plastlagðri innréttingu, sturtuklefa og skáp undir vask. Gólf og veggir flísalagðir. * Stór stofa og borðstofa. Utangengt er úr stofunni í garðinn. Parket á gólfi þarfnast endurnýjunnar. * Eldhús með upprunalegri innréttingu. Gólf dúklagt. * Þvottahús inn af eldhúsi. Dúkur á gólfi.
* 10,8m2 útigeymsla er við hlið húss, sem búið er að breyta í herbergi * Bílskúrinn er afklætt bílskýli og er 19.8m2 . * Bílaplan grófjafnað * Lóðin er stór.
* Skipt hefur verið um járn á þaki og allt gler og glugga.
Þjónustustig í Þorlákshöfn er gott - Hagnýtar upplýsingar :)
Verslun og þjónusta:
Hér má m.a. finna:
Apótekarann.
Bakaríið Café Sól (facebook: café sól)
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Kr.-verslun með yfir 2.000 helstu vöruliði á Krónuverði
Veitingastaðina:
Hendur í Höfn, kaffihús, veitingastað og glerlistasmiðju (hendurihofn.is og
facebook: hendur í höfn)
Meitilinn (facebook: Meitillinn veitingahús)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn) og
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er Olís hér með ÓB-stöð.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss)
Landsbankinn
og útibú Póstsins
Tómstundir og afþreying: Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga. Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton, motorcrossá braut rétt utan við bæinn, hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring og golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk.
Jógastúdíó (Jógahornið).
Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna:
Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð.
Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér.
Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.
Einnig er hér:
Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.)
Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver)
O.sfr. o.s.frv. o.s.frv. :)
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: www.hafnarfrettir.is
|