Vesturbakki 5 Hobbýbil / geymslur , Þorlákshöfn
20.000.000 Kr.
Atvinnuhúsnæði
0 herb.
68 m2
20.000.000
Stofur
0
Herbergi
0
Baðherbergi
1
Svefnherbergi
0
Byggingaár
2023
Brunabótamat
20.400.000
Fasteignamat
9.920.000
Sjá allar myndir stórar Teikningar DEILA Senda á vin

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir:  Vesturbakki 5, Þorlákshöfn.  Um er að ræða 12 NÝJAR GEYMSLUR / HOBBÝBIL, 66,4 m² að stærð, á einni hæð. 
Húsnæðið er mjög vel staðsett og afhendist fullbúið með malbikaðri lóð
.

Smellið hér fyrir staðsetningu

Kynning á byggingaraðila hússins:  https://www.sjabaekling.is/murmal/WebView/

* Allar nánari upplýsingar fást í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com *

Nánari lýsing:

Húsið skiptist í 12 einingar, 65,3 - 65,5m2 hvert að birtu flatarmáli.
Allar einingar eru með ræstivask og salerni.
Byggingin er á einni hæð.
Lóðin verður malbikuð, gert ráð fyrir einu bílastæði fyrir framan hverja einingu.


Uppbygging húss:
Húsið er byggt ofan á steypta sökkla.
Gólfplata:  
Hefðbundin staðsteypt plata, einangruð að innan með gólfhita. Neysluvatnslagnir eru lagðar samkv. verkfræðiteikningm, rör í rör.
Útveggir/ þak / þakkantur / burðarvirki:
Allir útveggir og þak hússins eru úr yleiningum, samlokueiningar frá Kingspan. Burðarvirki er límtré. Litur klæðninga að utanverðu er RAL7016 og að innan RAL 9010. Þakkantur er einfaldur, stálklæddur í sama lit og þakefni með utanáliggjandi álrennum og niðurfallsrörum í sama lit.
Gluggar og hurðir: Iðnaðarhurðir eru frá viðurkenndum og þekktu framleiðanda í góðum gæðum, litur RAL 7016, og rafmótoropnun. Gönguhurðir og gluggar eru úr viðhaldsfríu PVC plasti með tvöföldu einangrunargleri. Litur RAL 7016.
Frárennslis og neysluvatnslagnir: Skólp‐ og regnvatnslagnir eru fullfrágengnar og tengdar fráveitukerfi í götu. Salerni eru fullfrágengin í hverri starfseiningu. Gólfniðurfall er fyrir innan allar innkeyrsluhurðir. Deilikistur fyrir neysluvatn frágengnar í hverri starfseiningu og tengt úr henni í viðkomandi viðtaka: salerni og mögulega eldhúsinnréttingu undir stiga. Brunaslanga frágengin og tengd. Niðurföll af malbikuðum plönum frágengin og tengd fráveitukerfi.
Hitakerfi: Gólfhitakerfi sem er innsteypt í botnplötuna á járnagrind komið í hverja starfseiningu, deilikista með hringrásarkerfi tengd í hverri einingu. Kerfi stjórnað með handvirkum ofnloka.
Rafmagn: Aðaltafla með mælum fyrir hverja starfseiningu frágengin í inntaksrými. Greinatafla frágengin í hverri starfseiningu með einum þriggja fasa tengli við hliðina. Tenglar á nokkrum stöðum í hverri starfseiningu skv. grunnhönnun raflagnahönnuðar. Full lýsing (LED) í hverri starfseiningu skv. grunnhönnun raflagnahönnuðar sem uppfyllir viðkomandi reglur. Raflagnir lagðar í aðgengilegum kapalstigum, auðvelt að breyta ljósum, slökkvurum, tenglum og slíku ef þurfa þykir. Útiljós við hurðir á hverri starfseiningu sem hægt er að stjórna frá viðkomandi einingu og tengist viðkomandi mæli (ekki sameign).   
Gert er ráð fyrir tengibúnaði vegna hleðslu rafbíla við hverja einingu. 
Lóð: Lóð afhendist malbikuð.
Virðisaukakvöð hvílir á húsinu sem kaupandi yfirtekur.

Skipulagsgjald:
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0,3% af væntanlegu brunabótamati.

Byggingin verður í notkunarflokki 1. samkv. byggingareglugerð en um er að ræða geymslur í þeim flokki.
Skil hússins miðast við ÍST51:2021 BS4 – Fullgerð bygging. A:T:H þetta er nýr staðall um skil á byggingarstigum húsa. 


FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/
 





Senda fyrirspurn vegna

Vesturbakki 5 Hobbýbil / geymslur

CAPTCHA code


Guðbjörg Heimisdóttir
Löggiltur fasteigna-fyrirtækja- og skipasali