Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir: Vetrarbraut 9, Þorlákshöfn. Glæsilegt, nýtt 131,8m2 parhús með bílskúr, staðsett á frábærum stað í nýju hverfi í Þorlákshöfn, í rólegu hverfi en örstutt frá allri þjónustu !
Garður snýr í Suður/vestur svo sólar nýtur við nær allan daginn. Húsið er úr timbri, klætt að utan með svartri ál-smábáru og eru gluggar og hurðar einnig svartir, úr ál/tré. Á þaki er svart þakjárn.
** Allar nánari upplýsingar má fá á fastsud@gmail.com og í síma 483 3424 **
Húsið telur:
* 2 mjög rúmgóð svefnherbergi.
* Stóra stofu og eldhús í opnu rými
* Baðherbergi. Utangengt er af baðinu.
* Þvottahús og geymslu. Úr þvottahúsinu er innangengt í bílskúrinn.
* Bílskúr.
Húsið afhendis tilbúið til innréttingar skv. neðangreindri lýsingu:
* Allir útveggir eru gipsklæddir og málaðir eina umferð með ljósum lit.
* Berandi innveggir eru gipsklæddir og málaðir eina umferð með ljósum lit.
* Léttir innveggir eru gifsklæddir á 70mm stálstoðum og málaðir eina umferð með ljósum lit.
* Loft alrýmis eru gipsklædd og máluð með 2 umferðum af ljósum lit.
* Gólf eru tilbúin til lagninga á gólfefnum (ekki rykbundin).
* Rafmagnstafla er komin og búið að draga í fyrir vinnulýsingu.
* Skolp og vatnslagnir eru tengdar fráveitukerfi götu.
* Hitalagnir eru í steyptri gólfplötu og tengdar við tengikistur.
* Lóðin er grófjöfnuð.
FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !
Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.
Heimasíða fasteignasölunnar: https://www.eignin.is/
Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:
Við Þorlákshöfn er rómaður golfvöllur sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna!
Hér eru einstaklega góður grunn- og leikskóli þar sem tekin eru inn börn niður í 18 mánaða!
Verslun og þjónusta:
Hér má m.a. finna:
Apótekarann.
Bakaríið Kaffiskjóðan (facebook: café sól)
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Kr.-verslun með yfir 2.000 helstu vöruliði á Krónuverði
Veitingastaðina:
Caffe Bristól (facebook: Caffe Bristól)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn) og
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er Olís hér með ÓB-stöð.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss)
Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga. Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton, motorcrossá braut rétt utan við bæinn, hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring og golf á rómuðum golfvelli. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk.
Jógastúdíó (Jógahornið).
Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna:
Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð.
Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér.
Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.
Einnig er hér:
Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.)
Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver)
O.sfr. o.s.frv. o.s.frv. :)
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: www.hafnarfrettir.is