Þurárhraun 9, Nýtt miðjuraðhús , Þorlákshöfn
70.900.000 Kr.
Raðhús
4 herb.
129 m2
70.900.000
Stofur
1
Herbergi
4
Baðherbergi
2
Svefnherbergi
3
Byggingaár
2022
Brunabótamat
63.480.000
Fasteignamat
55.900.000
Sjá allar myndir stórar Teikningar DEILA Senda á vin

Fasteignasala Suðurlands kynnir:  Þurárhraun 9, Þorlákshöfn.  Nýtt, stórglæsilegt, 4ra herbergja miðjuraðhús ásamt bílskúr á frábærum stað í nýju hverfi í Þorlákshöfn í einungis 30 mín frá Reykjavík.  HÚSIÐ ER TILBÚIÐ TIL AFHENDINGAR 1.MAÍ 2023!

** Fasteignin er í sölumeðferð **

ENDILEGA SKOÐIÐ ÞESSA FALLEGU EIGN MEÐ "GÖNGUFERÐ" Í GEGNUM HÚSIРhttps://my.matterport.com/show/?m=eowoyXfgf75


Lóð er fullfrágengin, bílaplan steypt og flísalögð verönd undir skyggni á bak við hús ! Húsið er glæsilega hannað, klætt með fallegri bronsaðri álbáru og gegnheilum bambus. 

**Bóka má skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com **

Húsið afhendist svo:  

*  Flísalagt anddyri með stórum skáp með rennihurðum.
*  Glæsilegt eldhús með  L-laga innréttingu, vask og blöndunartækjum, 80 sm spanhelluborði og ofni.  Uppþvottavél fylgir með.
Fallega stofu þaðan sem utangengt er á verönd um stórar rennihurðar.  3,7m lofthæð er í stofu !  Stofa og eldhús eru í opnu rými.
*  3 rúmgóð svefnherbergi.  Skápar eru í öllu herbergjum og einstaklega stórir fataskápar í hjónaherbergi.  *  Úr hjónaherbergi er utangengt á verönd. 
*  2 baðherbergi og er annað þeirra innaf hjónaherbergi:
Á aðalbaðherberginu eru flísar á gólfi, falleg innrétting með speglaskáp, upphengt wc og sturta með glerþili.
Á baðherbergi inn af hjónaherbergi eru flísar á gólfi, falleg innrétting með speglaskáp, upphengt wc og sturta með hurðum sem hægt er að leggja að vegg. 
*  Þvottahús með flísum á gólfi, vaskaskáp með dökkri plastlagðri borðplötu með skolvaski í. Gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara undir borðplötu. Á einfaldan hátt er hægt að setja milliloft í þvottahús og útbúa geymslurými.
*  Á gólfum er vatnsþolið Hydrocork korkparket og flísar á votrýmum og við anddyri.  Gólfhiti er í öllum gólfum.  Í öllum loftum er ljós loftapanell..   Gólfhiti er í öllum gólfum.  Í öllum loftum er ljós loftapanell.
*  Innangengt er í bílskúrinn úr þvottahúsi.
*  Bílskúrinn er með epoxy-kvarts á gólfi og hurð með opnara. Hægt er að setja milliloft í hluta bílskúrsins. 

**Sjá myndir að innan, í samskonar húsi (til viðmiðunar):  http://fasteignir.visir.is/property/425826?search_id=96238561&index=2

*  Lóðin snýr í suðvestur.   Frá hádegi og fram á kvöld skín sól á bakhlið hússins þar sem veröndin er staðsett.
Bílaplan og aðkoma fyrir framan hús er steypt plata með snjóbræðslurörum undir.   Sorptunnuskýli fyrir þrjár tunnur.
*  Á baklóð er  flísalögð verönd, undir skyggni.  Hægt er að ganga út á verönd beint út í garð á tveim stöðum, frá hjónaherbergi og gegnum stóra rennihurð úr stofu. Garðkrani er á vegg. 
*  Ídráttarrör fyrir vatn og rafmagn klár sem og frárennsli fyrir heitan pott.
*  Lóðin er þökulögð og snyrtilega frágengin.
*  Lýsing er í  þakskyggni beggja megin. Rafmagnstenglar eru í þakskyggni beggja megin við hús, fyrir jólaseríurnar.
*  Gert er ráð fyrir hússtjórnunarkerfi í anddyri þar sem mögulegt er að setja upp stýringu fyrir ljós, hita, öryggiskerfi oflr.  
*  Gert er ráð fyrir rafbílahleðslu.

** SJÓN ER SÖGU RÍKARI **


Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
Apótekarann.
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Kr.-verslun með yfir 2.000 helstu vöruliði á Krónuverði 

Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.

Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.

Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn

Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.

Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.

Afþreying er hér af ýmsum toga:

hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: www.hafnarfrettir.is





Senda fyrirspurn vegna

Þurárhraun 9, Nýtt miðjuraðhús

CAPTCHA code


Guðbjörg Heimisdóttir
Löggiltur fasteigna-fyrirtækja- og skipasali