HLUTDEILDARLÁN Í BOÐI !
Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í samvinnu við Eignamiðlun: Klettamói 5, Íbúð 0203. Falleg 4ra herbergja, 94,9m2 ENDAíbúð á 2.hæð með sér geymslu. Íbúðin afhendist fullbúin og er með sérinngang. ** Stutt frá helstu þjónustu, skóla og íþróttasvæðum.
** Sjá skilalýsingu: https://moabyggd.is/pdf/klettamoi-5-moabyggd-skilalysing-2023-08-14.pdf
** Sjá staðsetningu á korti: https://ja.is/kort/?x=382704&y=374923&q=Klettam%C3%B3i%205%2C%20815%20%C3%9Eorl%C3%A1ksh%C3%B6fn&page=1&nz=16.57
** SJÁ UPPLÝSINGAR UM HLUTDEILDARLÁN: https://hms.is/husnaedi/lan-til-einstaklinga/husnaedislan/hlutdeildarlan
** Hægt er að fá að skoða samdægurs - allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com**
Eignin skiptist svo:
* Rúmgott anddyri með fataskáp.
* 3 svefnherbergi með góðum skápum.
* Stofu þaðan sem utangengt er á suðursvalir. Stofa og eldhús eru í opnu rými.
* Eldhús með innréttingu frá HTH, helluborð og bakaraofn og háfur frá AEG fylgja með.
* Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, upphengdu salerni, snyrtilegri innréttingu og sturtu.
* Þvottahús inni í íbúð.
* Sér geymsla fylgir íbúð sem og sameiginleg hjóla-og vagnageymsla.
* Lagnaleið að bílastæðum fyrir hleðslustöðvar.
Húsið eru staðsteypt fjölbýlishús á tveimur hæðum við miðbæ Þorlákshafnar. Í húsinu eru 6 íbúðir ásamt geymslum.
Lögð er áhersla á að öll umgjörð hverfisins verði hlý og aðlaðandi með lágstemmdri byggð sem skiptist í nokkra kjarna sem tengjast saman með vistgötum.
FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !
Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.
Heimasíða fasteignasölunnar: https://www.eignin.is/
Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:
Við Þorlákshöfn er rómaður golfvöllur sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna!
Hér eru einstaklega góður grunn- og leikskóli þar sem tekin eru inn börn niður í 18 mánaða!
Verslun og þjónusta:
Hér má m.a. finna:
VERSLUN KRÓNUNNAR
Apótekarann.
Bakaríið Café Sól (facebook: café sól)
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Veitingastaðina:
Caffe Bristól Bauhaus (facebook: Caffe Bristól)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn) og
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er Olís hér með ÓB-stöð.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss)
Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga. Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton, motorcrossá braut rétt utan við bæinn, hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring og golf á rómuðum golfvelli. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk.
Jógastúdíó (Jógahornið).
Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna:
Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð.
Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér.
Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.
Einnig er hér:
Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.)
Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver)
O.sfr. o.s.frv. o.s.frv. :)
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: www.hafnarfrettir.is