Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu: Kléberg 3, Þorlákshöfn. Mikið endurnýjað 137m2 einbýlishús með 4 góðum svefnherbergjum og nýjum ca 60m2, rúmlega fokheldum bílskúr. Gert er ráð fyrir íbúð í enda skúrsins. Bakgarðurinn snýr í hásuður !
Eignin er frábærlega staðsett í grónu hverfi, rétt við skóla, leikskóla og íþróttasvæði. Grænt svæði er á bak við húsið, þ.e. ekki verður byggt þar í framtíðinni.
**Hægt er að fá nánari upplýsingar og bóka skoðun í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com**
Eignin skiptist svo:
* 4 svefnherbergi, þar af 2 mjög rúmgóð. Fataskápar eru í öllum herbergjum. Nýtt harðparket er á 3 svefnherbergjum.
* Mjög rúmgóða stofu og borðstofu með flísum á gólfi.
* Úr stofunni er utangengt á stóran sólpall sem snýr í hásuður. Búið er að setja plexígler skjólþak á hluta sólpallsins.
* Fallegt, rúmgott eldhús með viðarinnréttingu og flísum á gólfi.
* Nýupptekið baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, glæsilegri innréttingu með innfelldri lýsingu og sturtu úr glerþili. (verið er að skipta um glugga á baði).
* Mjög gott þvottahús með stórri innréttingu og flísum á gólfi.
* 2 geymslur eru inn af þvottahúsi (kyndiklefi og geymsla).
* Bílskúrinn er ca 60m2 og er hann rúmlega fokheldur. Gert er ráð fyrir íbúð í enda bílskúrs.
* Húsið hefur fengið gott viðhald; Baðherbergi er algjörlega endurnýjað, nýjar innihurðar eru í öllu húsinu, nýtt parket er á 3 herbergjum, búið er að skipta um járn á þaki, nýir gluggar og gler, ný hurð á verönd. Miðstöðvarlagnir hafa verið endurnýjaðar.
*Garðurinn er uppgróinn og snýr að mestu leyti í hásuður og er mjög skjólsæll.
* Húsið er einstaklega vel staðsett í grónu hverfi skammt frá leikskóla, grunnskóla og íþróttasvæði !
** Sjón er sögu ríkari !
FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !
Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.
Heimasíða fasteignasölunnar: https://www.eignin.is/
Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna:
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: www.hafnarfrettir.is