Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir: Fallega miðjuíbúð með sérinngangi á jarðhæð að Sambyggð 14, íbúð 0103, 815 Þorlákshöfn.
Húsið þarfnast verulegs viðhalds að utan - nánari upplýsingar fást í söluyfirliti.
Búið er að taka niður handrið af svölum (þau sem eru á mynd) og eru bráðabirgðahandrið á svölunum núna.
** Hægt er að bóka skoðun og fá allar upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com **
Íbúðin skiptist í:
* Flísalagða forstofu.
* Rúmgott svefnherbergi með góðum fataskáp.
* Rúmgóða stofu og eldhús í opnu rými. Hvít innrétting er í eldhúsinu.
* Nýtt parket er á öllum gólfum.
* Utangengt er úr stofunni á sérafnotaflöt.
* Baðherbergi með sturtu úr glerþili og hvítri innréttingu. Flísar eru á gólfi. * Þvottavélartengill er á baðherberginu.
* Sameiginlega geymslu á jarðhæð.
FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !
Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.
Heimasíða fasteignasölunnar: https://www.eignin.is/
Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna:
KRÓNU verslun.
Apótekarann.
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.