Elsugata 21 , Þorlákshöfn
41.500.000 Kr.
Raðhús
4 herb.
129 m2
41.500.000
Stofur
1
Herbergi
4
Baðherbergi
1
Svefnherbergi
3
Byggingaár
2024
Brunabótamat
0
Fasteignamat
0
Sjá allar myndir stórar Teikningar DEILA Senda á vin

Nýtt, fallegt, miðjuraðhús að Elsugötu 19, Þorlákshöfn.  Húsið er einstaklega vel skipulagt, með 3 stórum svefnherbergjum og mjög rúmgóðu alrými.   
Húsið snýr í austur/vestur þannig að sólar nýtur í garði frá morgni til kvölds !  Húsið er staðsett í glænýju hverfi. HÚSIÐ ER TILBÚIÐ TIL AFHENDINGAR !   
Húsið er klætt að utan með bárujárni og við í bland.   Þak er valmaþak.   Fallegir, gólfsíðir glugga eru í alrými !

** FRÁBÆRT FJÁRFESTINGARTÆKIFÆRI FYRIR VERKTAKA **

** Allar nánari upplýsingar má nálgast í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com **

Húsið telur samkvæmt teikningu:
* 3 mjög rúmgóð svefnherbergi.
* Stórt eldhús og stofu í opnu rými.  Úr alrýminu er utangengt í garðinn. 
* Baðherbergi.  Af baðherberginu er utangengt í garðinn þar sem gert er ráð fyrir heitum potti.
* Þvottahús.
* Góða geymslu. 
* Anddyri. 

Húsið afhendist fokhelt (byggingarstig 4 í eldra byggingarstigi):

Húsið afhendist fullfrágengið að utan. 
Frágangur utanhúss: 

Útveggir:    eru úr timbri og klæddir að utan með liggjandi báruklæðningu í ljósbrúnum lit í bland við standandi.
** Endanlegur litur á húsunum getur verið annar en kemur fram á teikningu. er annað hvort skel 1013 eða sandur 1019.  *
timburklæðningu.

Þak: Á þaki er grátt bárujárn. Þakkantar eru frágengnir og lagt fyrir útiljósum. Vindskeiðar verða komnar og líklegast verða þær úr áli sama lit og glugga . Þakrennur og niðurföll verða frágengin.
Þak er niðurbyggt kraftsperruþak með 15° þakhalla. 
Gluggar og útihurðir: Gluggar og útihurðir eru úr ál/ timbri í dökkgráum lit,  fullfrágengnir og glerjaðir. 
Aðgengi og lóð: Lóð og bílaplan eru grófjöfnuð. Ruslaskýli eru frágengin.

Frágangur innanhúss:
Gólfplata verður slípuð og flotdregin eftir þörfum.. 
Veggir og loft: Kraftsperrur eru í húsinu og brunaveggur milli húsa verður komið. 

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/


Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
VERSLUN KRÓNUNNAR
Apótekarann.
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.

Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.

Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.

Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn

Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn ásamt fjallahjólagarði fyrir alla aldurshópa.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.

Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.

Afþreying er hér af ýmsum toga:

hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: www.hafnarfrettir.is





Senda fyrirspurn vegna

Elsugata 21

CAPTCHA code


Guðbjörg Heimisdóttir
Löggiltur fasteigna-fyrirtækja- og skipasali