Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir: Núpahraun 24, Þorlákshöfn, nýtt, fallegt, 104m2 miðjuraðhús með 3 svefnherbergjum. ** MÖGULEIKI ER Á SELJANDALÁNI TIL AÐ BRÚA BIL MILLI LÁNS FRÁ LÁNSTOFNUN OG EIGIÐ FÉS **SÓLRÍKUR SUÐURGARÐUR !
Loft eru upp tekin í öllu húsinu sem gerir öll rými björt og falleg, 4,5m lofthæð er í hæsta punkt !* Nýr Miðbær verður hinum megin við götuna.
**Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar á [email protected] og í síma 483 3424**Húsið skiptist svo:* Anddyri með flísum á gólfi og góðum skáp.
* Eldhús og stofa í rúmgóðu opnu rými. Innbyggður ísskápur fylgir.
Mikil lofthæð, lofthæð í hæsta punkti er 4.5m
! Úr stofunni er utangengt um rennihurð í garðinn sem snýr í suður/vestur. Gólfsíðir gluggar eru í stofu sem hleypta mikilli birtu inn.
** Seljandi bætir við skápum í eldhúsi.
* 3 svefnherbergi með harðparketi á gólfi.
* Baðherbergi með sturtu úr glerþili, innréttingu og upphengdu wc.
Í eldhúsi og á baðherbergi eru Svara (Vent Axia) viftur. Þessi vifta kemur forstillt á stöðuga lægstu stillingu (10 l/sek). Ljósaskynjari eykur flæðið upp í 19 l/sek þegar ljós er kveikt á baðherbergi og rakaskynjari eykur flæðið svo enn meira eða upp í 30 l/sek ef rakastig hækkar í herberginu, t.d. vegna sturtu. Frábær, hljóðlát loftræsting
* Þvottahús.* Geymsla. Á einfaldan hátt er hægt að setja milliloft í geymsluna og nýta hana þá bæði sem geymslu og t.d. heimaskrifstofu..* Fallegt harðparket í herbergjum, stofu, eldhúsi.
Flísar á baði, þvottahúsi og anddyri.
* Dúkaloft frá Parka er í húsinu þannig að hljóðvist er mikil (mikið notað í nýjum húsum, hótelum, skrifstofubyggingu osfrv).Gólfhitalagnir lagðar og tengdar saman við tengigrind. Gólfhiti tengdur og virkur. Stýringar fylgja ekki.
* Lóð þökulögð og fín möl í plani. Gert er ráð fyrir snjóbræðslu (rör út úr húsi) fylgir ekki.
** Garður snýr í suður/vestur!* Sorptunnuskýli á lóð fylgja.
* Gert ráð fyrir rafhleðslu fyrir rafbíla. Hleðslustöð fylgir ekki.
** Sjón er sögu ríkari **FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !
Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.
Heimasíða fasteignasölunnar: https://www.eignin.is/
Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:Við Þorlákshöfn er rómaður golfvöllur sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna!
Hér eru einstaklega góður grunn- og leikskóli þar sem tekin eru inn börn niður í 18 mánaða!
Verslun og þjónusta:
Hér má m.a. finna:
VERSLUN KRÓNUNNAR
Apótekarann.
Bakaríið Café Sól (facebook: café sól)
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Veitingastaðina:
Thai Sakhon veitingahús (facebook: Thai Sakhon Restaurant)
Caffe Bristól Bauhaus (facebook: Caffe Bristól)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn) og
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er Olís hér með ÓB-stöð.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss)
Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga. Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton, motorcrossá braut rétt utan við bæinn, hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring og golf á rómuðum golfvelli. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk.
Jógastúdíó (Jógahornið).
Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna:
Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð.
Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér.
Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.
Einnig er hér:
Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.)
Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver)
O.sfr. o.s.frv. o.s.frv. :)
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: www.hafnarfrettir.is