Klettamói 7, íbúð 0102 , 815 Þorlákshöfn
49.300.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
3 herb.
67 m2
49.300.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
39.500.000
Fasteignamat
46.270.000

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424 ) kynnir í einkasölu:  Klettamói 7, Íbúð 0102.  Falleg 3ja herbergja , 63,8m2 íbúð á jarðhæð auk 3,9m2 geymslu.  Íbúðin er með sérinngang. 
Íbúðin skilast með uppþvottavél og ísskáp og ljósum í öllum rýmum. Sérafnotaflötur er í hásuður!  Skemmtileg grænt svæði er á milli húsanna með leiktækjum ofl. 
Eignin er laus 1.nóvember 2024.    

Stutt frá helstu þjónustu, skóla og íþróttasvæðum  !

** Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á [email protected]**

Eignin skiptist svo:
*  Rúmgott anddyri með fataskáp.
*  2 svefnherbergi með góðum fataskápum. 
*  Stofu þaðan sem utangengt er á sérafnotasvæði í há-suður.  Stofa og eldhús eru í opnu rými.
*  Eldhús með innréttingu frá HTH, helluborði, bakaraofn og háf frá AEG ásamt ísskáp og uppþvottavél.
*  Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, upphengdu salerni, snyrtilegri innréttingu og sturtu.
*  Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi.
*  Nýtt harðparket er á öllum gólfum og flísar á baði. 
*  Sér geymsla fylgir íbúð. Ekki er sameiginleg hjóla-og vagnageymsla í húsinu.
*  Lagnaleið að bílastæðum fyrir hleðslustöðvar. 

Húsið er staðsteypt fjölbýlishús á tveimur hæðum við miðbæ Þorlákshafnar. Í húsinu eru 6 íbúðir ásamt geymslum.
Lögð er áhersla á að öll umgjörð hverfisins sé hlý og aðlaðandi með lágstemmdri byggð sem skiptist í nokkra kjarna sem tengjast saman með vistgötum.

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/
Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott -  hagnýtar upplýsingar:

Við Þorlákshöfn er rómaður golfvöllur sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna!
Hér eru einstaklega góður grunn- og leikskóli þar sem tekin eru inn börn niður í 18 mánaða!
Verslun og þjónusta:
Hér má m.a. finna:
VERSLUN KRÓNUNNAR
Apótekarann.
Bakaríið Café Sól (facebook:  café sól)
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook:  kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Veitingastaðina:
Thai Sakhon veitingahús (facebook:  Thai Sakhon Restaurant)
Caffe Bristól Bauhaus (facebook:  Caffe Bristól)
Svarta Sauðinn (facebook:  svarti sauðurinn)  og 
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar.    Einnig er Olís hér með ÓB-stöð.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins: 
Mjög gott bókasafn (facebook:  Bæjarbókasafn Ölfuss)
Landsbankinn 
Tómstundir og afþreying: 
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga. Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook:  fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook:  Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton, motorcrossá braut rétt utan við bæinn, hestamennska (facebook:  hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring og golf á rómuðum golfvelli.  Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.   
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl.  Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk.
Jógastúdíó (Jógahornið).
Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna:  
Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. 
Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér.
Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.  
Einnig er hér:
Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).
Hinir ýmsu kórar (facebook:  Tónar og Trix, Kyrjukórinn,  ofl.)
Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook:  Kiwanisklúbburinn Ölver)
O.sfr. o.s.frv. o.s.frv.  :)
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á:  www.hafnarfrettir.is







 
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.