Þurárhraun 9, m bílskúr og 2 baðhb. , 815 Þorlákshöfn
81.500.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
129 m2
81.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
66.000.000
Fasteignamat
64.100.000

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu:  Þurárhraun 9, Þorlákshöfn.  Stórglæsilegt, 4ra herbergja miðjuraðhús ásamt bílskúr, byggt 2023, á frábærum stað í nýju hverfi í Þorlákshöfn í einungis 30 mín frá Reykjavík.  
Lóð er fullfrágengin, bílaplan steypt og flísalögð verönd undir skyggni á bak við hús ! Húsið er glæsilega hannað, klætt með fallegri bronsaðri álbáru og gegnheilum bambus. 

**Bóka má skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á [email protected] **


Húsið skiptist svo:  
*  Flísalagt anddyri með stórum skáp með rennihurðum.
*  Glæsilegt eldhús með fallegri innréttingu, vask og blöndunartækjum, 80 sm spanhelluborði og ofni.  
*  Fallega stofu þaðan sem utangengt er á verönd um stórar rennihurðar.  3,7m lofthæð er í stofu !  Stofa og eldhús eru í opnu rými.
*  3 rúmgóð svefnherbergi.  Skápar eru í öllu herbergjum og einstaklega stórir fataskápar í hjónaherbergi.  *  Úr hjónaherbergi er utangengt á verönd. 
*  2 baðherbergi og er annað þeirra innaf hjónaherbergi:
Á aðalbaðherberginu eru flísar á gólfi, falleg innrétting með speglaskáp, upphengt wc og sturta með glerþili.
Á baðherbergi inn af hjónaherbergi eru flísar á gólfi, falleg innrétting með speglaskáp, upphengt wc og sturta með hurðum sem hægt er að leggja að vegg. 
*  Þvottahús með flísum á gólfi, vaskaskáp með dökkri plastlagðri borðplötu með skolvaski í. Gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara undir borðplötu. Á einfaldan hátt er hægt að setja milliloft í þvottahús og útbúa geymslurými.
*  Á gólfum er vatnsþolið Hydrocork korkparket og flísar á votrýmum og við anddyri.  Gólfhiti er í öllum gólfum.  Í öllum loftum er ljós loftapanell. 
*  Innangengt er í bílskúrinn úr þvottahúsi.
*  Bílskúrinn er með epoxy-kvarts á gólfi og hurð með opnara. Hægt er að setja milliloft í hluta bílskúrsins. 

*  Lóðin snýr í suður.  
*  Bílaplan og aðkoma fyrir framan hús er steypt plata með snjóbræðslurörum undir.   Sorptunnuskýli fyrir þrjár tunnur.
*  Á baklóð er  flísalögð verönd, undir skyggni.  Hægt er að ganga út á verönd beint út í garð á tveim stöðum, frá hjónaherbergi og gegnum stóra rennihurð úr stofu. Garðkrani er á vegg. 
*  Ídráttarrör fyrir vatn og rafmagn klár sem og frárennsli fyrir heitan pott.
*  Lóðin er þökulögð og snyrtilega frágengin.
*  Lýsing er í  þakskyggni beggja megin. Rafmagnstenglar eru í þakskyggni beggja megin við hús, fyrir jólaseríurnar.
*  Gert er ráð fyrir hússtjórnunarkerfi í anddyri þar sem mögulegt er að setja upp stýringu fyrir ljós, hita, öryggiskerfi oflr.  
*  Gert er ráð fyrir rafbílahleðslu.

Það athugist að búið er í fasteigninni. Myndir að innan voru teknar fyrir innflutning.

** SJÓN ER SÖGU RÍKARI **

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/


Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
Apótekarann.
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
VERSLUN KRÓNUNNAR 

Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: www.hafnarfretti
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.