Heinaberg 11, með aukaíbúð , 815 Þorlákshöfn
83.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús með aukaíbúð
5 herb.
170 m2
83.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1970
Brunabótamat
60.600.000
Fasteignamat
62.300.000

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu:  Heinaberg 11, Þorlákshöfn. Vel staðsett og skemmtilega skipulagt 136,5m2 einbýlishús með 4 svefnherbergjum ásamt 33,9m2 AUKAÍBÚÐ í bílskúr.
*** Verið er að setja nýja  álklæðning á húsið , dökkgrá með timbri í bland.
*** Nýtt harðparket á stofu og gangi.
*** Nýjar ofnalagnir.



** Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á [email protected] **

Eignin skiptist svo:  
*  Flísalögð, rúmgóð forstofa.
*  Stór stofa og borðstofa með parketi á gólfi.
*  Úr stofunni er utangengt á sólpall með heitum potti. 
*  4 stór svefnherbergi.  Skápar eru í 2 herbergjanna.  Parket  er á gólfum. 
*  Stórt eldhús með nýlegri innréttingu og nýlegum heimilistækjum. Nýlegt harðparket er á gólfi.
*  2 baðherbergi eru í húsinu.
Aðalbaðherbergi með hvítri innréttingu við vask og sturtuklefa. Flísar á gólfi og veggjum. 
Gestabaðherbergi með flísum á gólfi, wc og vask.
*  Stórt þvottahús með flísum á gólfi. Úr þvottahúsinu er utangengt á baklóð. 
*   Þvottahúsið nýtist einnig sem góð geymsla.

*  Bílskúrinn er innréttaður sem falleg stúdíóíbúð;  eldhús og herbergi í opnu rými og þvottaaðstaða og baðherbergi í sameiginlegu  rými.   
* Járn á þaki húss  er nýlegt og þakkantar. 
*  Garðurinn er uppgróinn og bílaplan er með möl. 

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 

Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.

Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: www.hafnarfrettir.is

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.