Klængsbúð 20, m suður og vestur lóð , 815 Þorlákshöfn
75.000.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
3 herb.
121 m2
75.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2019
Brunabótamat
57.950.000
Fasteignamat
61.050.000

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu: Klængsbúð 20, Þorlákshöfn.  Einstaklega skemmtilega skipulagt 121,5m2 endaraðhús með 3 stórum svefnherbergjum og bílskúr.   Húsið er timburhús, klætt að utan með bárujárni.   
Lóðin snýr í suður og vestur og nýtur því sólar þar allan daginn.  Utangengt er á stóra verönd. 

** Bóka má skoðun og fá allar nánari upplýsingar á [email protected] og í síma 483 3424 **

Húsið telur 97,7m2 og bílskúrinn 23,8m2 og skiptist svo:
* Anddyri  með góðum skáp og flísum á gólfi.
* 3 stór svefnherbergi (herbergi inn af forstofu er merkt geymsla á teikningu).  Góðir skápar eru í hjónaherbergi og einu barnaherbergi.
* Rúmgóð stofa og eldhús í opnu rými.
* Eldhúsið er með fallegri, dökkri innréttingu.
* Utangengt er á stóran sólpall  úr stofunni.
* Fallegt baðherbergi með flísu á gólfi og veggjum, innréttingu og sturtu úr glerþili.
* Mjög gott þvottahús/geymsla með stórum skápum og vinnuborði með vask.  Utangengt er úr þvottahúsinu.
* Á öllum gólfum, nema blautflötum er eins, fallegt, harðparket. 
* Fullbúinn bílskúr. 
* Milliloft er yfir ca helmingi skúrsins.
* Garðurinn er með stórum sólpall á suður og vesturhlið. 
* Bílaplan er með möl.


** það athugist að búið er í fasteigninni.. myndir teknar fyrir innflutning :) 

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 

Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.

Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: www.hafnarfrettir.is

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.