Fasteignasala Suðurlands (s
483 3424 ) kynnir í einkasölu:
Klettamói 7, Íbúð 0102. Falleg 3ja herbergja , 63,8m2 íbúð á jarðhæð auk 3,9m2 geymslu. Íbúðin er með sérinngang.
Íbúðin skilast með uppþvottavél og ísskáp og ljósum í öllum rýmum. Sérafnotaflötur er í hásuður! Skemmtilegur inngarður er á milli húsanna með leiktækjum ofl.
Eignin er laus við kaupsamning. Stutt frá helstu þjónustu, skóla og íþróttasvæðum !** Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á [email protected]**Eignin skiptist svo:* Rúmgott anddyri með fataskáp.
* 2 svefnherbergi með góðum fataskápum.
* Stofu þaðan sem utangengt er á sérafnotasvæði í há-suður. Stofa og eldhús eru í opnu rými.* Eldhús með innréttingu frá HTH, helluborði, bakaraofn og háf frá AEG ásamt ísskáp og uppþvottavél.* Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, upphengdu salerni, snyrtilegri innréttingu og sturtu.
* Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi.* Nýtt harðparket er á öllum gólfum og flísar á baði.
* Sér geymsla fylgir íbúð. Ekki er sameiginleg hjóla-og vagnageymsla í húsinu.
* Lagnaleið að bílastæðum fyrir hleðslustöðvar. Húsið er staðsteypt fjölbýlishús á tveimur hæðum við miðbæ Þorlákshafnar. Í húsinu eru 6 íbúðir ásamt geymslum.
Lögð er áhersla á að öll umgjörð hverfisins sé hlý og aðlaðandi með lágstemmdri byggð sem skiptist í nokkra kjarna sem tengjast saman með vistgötum.
FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.
Heimasíða fasteignasölunnar:
https://www.eignin.is/Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:
Við Þorlákshöfn er rómaður golfvöllur sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna!
Hér eru einstaklega góður grunn- og leikskóli þar sem tekin eru inn börn niður í 18 mánaða!
Verslun og þjónusta:
Hér má m.a. finna:
VERSLUN KRÓNUNNAR
Apótekarann.
Bakaríið Café Sól (facebook: café sól)
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Veitingastaðina:
Thai Sakhon veitingahús (facebook: Thai Sakhon Restaurant)
Caffe Bristól Bauhaus (facebook: Caffe Bristól)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn) og
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er Olís hér með ÓB-stöð.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss)
Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga. Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton, motorcrossá braut rétt utan við bæinn, hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring og golf á rómuðum golfvelli. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk.
Jógastúdíó (Jógahornið).
Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna:
Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð.
Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér.
Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.
Einnig er hér:
Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.)
Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver)
O.sfr. o.s.frv. o.s.frv. :)
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: www.hafnarfrettir.is