Sambyggð 2, 0301 , 815 Þorlákshöfn
41.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
70 m2
41.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1976
Brunabótamat
33.050.000
Fasteignamat
26.800.000

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu:  Mjög snyrtilega endaíbúð í fjölbýlishúsinu að Sambyggð 2, Þorlákshöfn / íbúð merkt 0301.  Eigninni fylgir sér geymsla á jarðhæð sem og sameiginleg vagna- og hjólageymsla og sameiginlegt þvottahús.    Stórir gluggar eru á suður- og vesturhlið stofunnar sem hleypa góðri birtu inn í rýmið.   Húsið hefur fengið gott viðhald.
Gæludýr eru leyfð í húsinu.

** Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á [email protected] **


Eignin skiptist svo:
*  Rúmgott anddyri með góðum skáp og flísum á gólfi. 
*  Fallegt eldhús með dökkri, plastlagðri innréttingu.  Flísar á gólfi og á milli skápa. 
*  2 svefnherbergi.  Fataskápar eru í báðum herbergjunum.
*  Stóra og bjarta stofu þaðan sem utangengt er á svalir sem snúa í vestur.  Stórir gluggar eru á suður- og vesturhlið stofunnar sem hleypa góðri birtu inn í rýmið.
*  Harðparket er á öllum gólfum nema baðherbergi.
*  Huggulegt baðherbergi með hvítri, plastlagðri innréttingu, baðkari með sturtugleri, flísum á gólfi og veggjum.
*  Þvottavélartengill er á baðherberginu.
** Sér geymsla á jarðhæð fylgir íbúðinni ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.

Húsið hefur fengið gott viðhald:  Búið er að skipta um járn á þaki.  Búið er að skipta um alla glugga og svalahurðar. Búið er að endurnýja hitaveitulagnir og grind.   

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 

Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.

Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: www.hafnarfrettir.is
Íbúðin telur:
* 2 svefnherbergi með fataskápum.
* Rúmgóða  og bjarta  stofu  með stórum gluggum til suðurs. 
Utangengt er á svalir út  úr stofunni.
* Eldhús með innréttingu
 *Baðherbergi með innréttingu, flísum á gólfi og sturtuklefa. .  Þvottavélartengill er á baðinu.
* Anddyri
* Gluggar og gler eru nýjir. Ofnalagnir eru upprunalegar sem og skolp.
* Sér geymsla er á jarðhæð ásamt sameiginlegri  hjóla- og vagnageymslu og þvottahúsi.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.