Fasteignasala Suðurlands (s
483 3424) kynnir í einkasölu:
Klængsbúð 20, Þorlákshöfn. Einstaklega skemmtilega skipulagt 121,5m2 endaraðhús með 3 stórum svefnherbergjum og bílskúr. Húsið er timburhús, klætt að utan með bárujárni. Húsið er skemmtilega staðsett skammt frá skóla, leikskóla og íþróttasvæði.Lóðin snýr í suður og vestur og nýtur því sólar þar allan daginn. Utangengt er á stóra verönd. ** Bóka má skoðun og fá allar nánari upplýsingar á [email protected] og í síma 483 3424 **Húsið telur 97,7m2 og bílskúrinn 23,8m2 og skiptist svo:* Anddyri með góðum skáp og flísum á gólfi.
* 3 stór svefnherbergi (herbergi inn af forstofu er merkt geymsla á teikningu).
Góðir skápar eru í hjónaherbergi og einu barnaherbergi.* Rúmgóð stofa og eldhús í opnu rými.* Eldhúsið er með fallegri, dökkri innréttingu.
* Utangengt er á
stóran sólpall úr stofunni.
* Fallegt baðherbergi með flísu á gólfi og veggjum, innréttingu og sturtu úr glerþili.
* Mjög gott þvottahús/geymsla með stórum skápum og vinnuborði með vask. Utangengt er úr þvottahúsinu.
* Á öllum gólfum, nema blautflötum er eins, fallegt, harðparket.
* Fullbúinn bílskúr.
* Milliloft er yfir ca helmingi skúrsins.
* Garðurinn er með stórum sólpall á suður og vesturhlið.
* Bílaplan er með möl.** það athugist að búið er í fasteigninni.. myndir teknar fyrir innflutning :)
FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !
Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.
Heimasíða fasteignasölunnar: https://www.eignin.is/
Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna:
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: www.hafnarfrettir.is