Egilsbraut 19 jarðh og góð staðsetn , 815 Þorlákshöfn
65.800.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
3 herb.
120 m2
65.800.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1998
Brunabótamat
55.080.000
Fasteignamat
41.700.000

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu:  Egilsbraut 19, Þorlákshöfn, íbúð merkt 0102.  Glæsilega, 3ja herbergja íbúð í fallegu fjórbýlishúsi ásamt bílskúr.  Íbúðin er einstaklega vel staðsett skammt frá skóla, leikskóla og íþróttasvæði !  Einnig er stutt í þjónustuhús eldri borgara.   
Íbúðin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning !

*  Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á [email protected]*


*  Eignin telur:
*  Rúmgott anddyri með flísum á gólfi og stórum fataskáp.
*  2 rúmgóð svefnherbergi með eikarparketi og dúk á gólfi.  Í hjónaherbergi eru stórir fataskápar. 
*  Bjarta og fallega stofu með eikarparketi á gólfi.  Stórir gluggar snúa í hásuður og hleypa fallegri birtu inn í rýmið.
*  Úr stofunni er utangengt á sólpall sem snýr í há-suður.
*  Fallegt, rúmgott eldhús með eikarinnréttingu og eikarparketi á gólfi.
*  Glæsilegt, ný upptekið baðherbergi með nýrri IFÖ innréttingu,  nýjum hreinlætistækjum, sturtu úr glerþili og flísum á gólfi og veggjum. 
*  Rúmgott þvottahús og geymslu í einu rými, með góðum skáp og hillum ásamt skolvask. Dúkur á gólfi.  Utangengt er úr þvottahúsinu.
*  Bílskúr með rafmagni og köldu vatni.  

Sjón er sögu ríkari !

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/


Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.

Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveita

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.