Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu: Norðurgötu 33, / Búgarðalóð - sem er 10.392m2 eignarlóð í Tjarnarbyggð í Sveitarfélaginu Árborg, milli Selfoss og Eyrarbakka. Einungis um 15mín akstur er á Selfoss og um 45 mínútna akstur til Reykjavíkur. Svæðið er skipt upp í klasa og eru 5-6 lóðir í hverjum klasa og á milli klasanna eru reið- og göngustígar. Búið er að taka inn rafmagn.
Á svæðinu er heimiluð ýmis atvinnustarfsemi tengd landbúnaði í samræmi við aðalskipulag Árborgar.
Tjarnarbyggð er skemmtilegur kostur fyrir fólk sem vill búa í sveitinni og nýta sér alla þjónustu eins og þéttbýlið hefur upp á að bjóða.
Heitt og kalt vatn og fjarskiptatengingar eru í vegi á lóðarmörkum.
Heimilt er að byggja allt að 1.500m2 á landinu/lóðinni, og þar af íbúðarhúsnæði allt að 1.000 m2. Samtals byggingarmagn íbúðarhúss og útihúsa skal þó ekki vera stærra en 1.500m2 samtals.
Samningur er við Sveitarfélagið Árborg um rekstur og þjónustu svæðisins. Samkvæmt þeim samningi sér Árborg um viðhald vega, snjómokstur, skólaakstur, sorphirðu og tæmimgu rotþróa.
FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !