Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir: Heinaberg 15, Þorlákshöfn. Einstaklega fallegt og skemmtilega skipulagt 145m2 einbýlishús ásamt 62m2 bílskúr. Húsið er mjög vel staðsett í grónu hverfi, örstutt frá leik- og grunnskóla og íþróttasvæði. Gengið er niður 2 tröppur í stofuna þar sem er fallegur arinn, sem gefur húsinu einstaklega skemmtilegt yfirbragð.
Húsið er laust til afhendingar!
**Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á [email protected] **Eignin skiptist svo:*
Rúmgóð flísalögð forstofa með skáp. Forstofuhurðin er með gleri.
*
Einstaklega glæsilega stofa með fallegum arinn og upp teknu lofti. Gengið er niður 2 tröppur í stofuna sem gerir hana afar skemmtilega. Parket á gólfi. Úr stofunni er utangengt á hellulagt svæði.
* Sjónvarpshol.* Borðstofa með parketi.* 3 mjög góð parketlögð svefnherbergi, öll með skápum.
Á tiltölulega einfaldan hátt er hægt að breyta borðstofunni í 4.herbergið.* Skrifstofuherbergi er í enda svefnherbergisgangs !
* Fallegt eldhús með hvítri og viðar innréttingu, flísum á gólfi og rúmgóðum borðkrók. Rennihurð er úr eldhúsi í borðstofu.
* Búr með hillum er inn af eldhúsi.
* Fallegt baðherbergi með ljósri innréttinu, baðkari og sturtu. Flísar eru á gólfi og veggjum.
* Rúmgott þvottahús með innréttingu, skápum og vinnuborði. Flísar á gólfi. Utangengt er úr þvottahúsinu í bakgarðinn á timburlagða verönd. Þvottasnúrur eru í bakgarði.
* Wc er í þvottahúsinu.
** Bílskúrinn er einstaklega stór og fullbúinn. Geymsla er í bílskúrnum. ** Garðurinn er uppgróinn og fallegur og bílaplan er steypt.
** Um er að ræða sérlega fallega eign sem hefur fengið mjög gott viðhald - sjón er sögu ríkari !
FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !
Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.
Heimasíða fasteignasölunnar: https://www.eignin.is/Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna:
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.
** Allar helstu fréttir úr sveita