Hjallabraut 12, við skrúðgarðinn , 815 Þorlákshöfn
82.800.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
5 herb.
175 m2
82.800.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1968
Brunabótamat
81.050.000
Fasteignamat
59.000.000

Fasteignasala Suðurlands (s 483-3424) kynnir í einkasölu á alveg einstökum stað: Hjallabraut 12, Þorlákshöfn.  Um er að ræða sérlega vel staðsett einbýlishús á tveimur hæðum með 4 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og innbyggðum bílskúr. Garðurinn er sérlega gróinn, með stórum sólpöllum með góðum skjólveggjum og heitum potti. 
Eignin er staðsett í einstöku umhverfi, í rólegum botnlanga, á móti skrúðgarði bæjarins
, í grónu hverfi, steinsnar frá skóla, leikskóla og íþróttasvæði og verslunarkjarna. 
** Á mjög einfaldan hátt er hægt að breyta hluti neðri hæðarinnar í stúdíóíbúð !

** Bóka má skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á [email protected] **


Eignin er á 2 hæðum og skiptist svo.

Efri hæð:
* Gengið er upp steyptar tröppur í anddyri með flísum á gólfi og fatahengi.
* Mjög rúmgott eldhús með fallegri innréttingu frá Fagus og flísum á gólfi.  Inn af eldhúsi er kalt búr með hillum. 
* Inn af eldhúsi er þvottahús með stórri innréttingu og flísum á gólfi.
* 3 góð svefnherbergi.  Skápar eru í 2 þeirra og plastparket á gólfi. 
**  Á einfaldan hátt er hægt að breyta öðru barnaherberginu í 2 svefnherbergi.
* Stór stofa og borðstofa með stórum gluggum.  Gólf parketlagt. 
Úr stofunni er utangengt á verönd.
* Baðherbergi með góðri innréttingu og baðkari. Flísar á gólfi og veggjum. 

* Úr þvottahúsi er stigi á neðri hæð íbúðarinnar.

Neðri hæð:
* Sér inngangur (forstofa), flísar á gólfi og fatahengi.
* Rúmgott herbergi með flísum á gólfi. .
* Baðherbergi með sturta, wc og vaskur.
** Á mjög einfaldan hátt er hægt að breyta hluta neðri hæðarinnar í stúdíóíbúð !

* Bílskúr með hita og rafmagni, gólf málað.  Bílaplan er hellulagt.

* Lóðin einstaklega falleg og gróin með stórum og miklum sólpöllum með skjólveggjum og heitum potti.  Lóðin er jafnframt sérlega skjólgóð.
* 2 gróðurhús eru á lóðinni. 


FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/


Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.

Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitafélaginu má finna á hafnarfrettir.is 

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.