Norðurbyggð 20b , 815 Þorlákshöfn
57.900.000 Kr.
Parhús/ Parhús á einni hæð
3 herb.
85 m2
57.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1986
Brunabótamat
51.050.000
Fasteignamat
41.900.000

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu: Norðurbyggð 20b, Þorlákshöfn.  Einstaklega fallegt og snyrtilegt 3ja herbergja parhús í lokuðum botnlanga.  Utangengt er úr stofu á skjólgóða verönd sem snýr í hásuður.  

*Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á [email protected]*


Eignin hefur verið mikið endurnýjuð og telur:
*  Rúmgóða forstofu með flísum á gólfi og fatahengi.
*  2  rúmgóð svefnherbergi með góðum fataskápum og parketi  á gólfi.  
*  Bjarta og fallega stofu með parketi á gólfi. 
*  Úr stofunni er utangengt á skjólgóða verönd sem snýr í há-suður. 
*  Mjög fallegt eldhús með nýlegri innréttingu og parketi á gólfi.
*  Fallegt, nýendurnýjað baðherbergi með fallegri hvítri innréttingu, upphengdu wc, sturtu með glerþili og flísum á gólfi og veggjum. 
*  Þvottahús og geymslu með góðri innréttingu með vinnuborði og skolvask.  Gólf flísalagt.
*  Ca 8m2 útigeymsla á lóð. 

*  Garðurinn er gróinn og með skjólgóðri verönd sem snýr í há-suður.
*  Steypt stétt er framan við húsið. 

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/



Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.

Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitaveitarfélaginu má finna á www.hafnarfrettir.is

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.