Opið hús: 03. júlí 2025 kl. 17:00 til 17:30.
Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu: Reykjabraut 7, Þorlákshöfn. Einstaklega vel staðsett og vel skipulagt einbýlishús með 4 svefnherbergjum og bílskúr. Garðurinn er með 2 sólpöllum, heitum potti og gróðurhúsi. Á næstu lóð við húsið er skemmtilegur og vel búinn leikvöllur.
Húsið er laust til afhendingar !
**Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar á [email protected] og í síma 483 3424 **
Eignin skiptist svo: * Flísalögð forstofa með stórum skáp.
* Mjög rúmgott eldhús með innréttingu úr kirsuberjavið. Íssápur og uppþvottavél eru innfelld og fylgja. Flísaparket er á gólfi.
* 4 svefnherbergi með beyki plastparketi á gólfi. Skápar eru í öllum herbergjum.
* Rúmgóð stofa og hol með beyki plastparketi á gólfi.
* Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, hvítlakkaðri innréttingu með dökkri borðplötu og baði. Hiti er í gólfi.
* Þvottahús er inn af eldhúsi. Í þvottahúsi er góð innrétting með vinnuborði og vask og flísar á gólfi. Utangengt er úr þvottahúsinu.
* Inn af þvottahúsi er geymsla með hillum og flísum á gólfi.
* Bílskúr. Bílskúrinn er einangraður og með rafmagni. * Bílaplan er með bundnu slitlagi. ** Garðurinn er uppgróinn og með 2 sólpöllum, heitum potti og gróðurhúsi. Gróðurhúsið er á öðrum sólpallinum; álgrind með plexigleri.
70m2 sólpallur með heitum potti er á suðurhlið hússins.
Á norðurhlið hússins er 30m2 sólpallur. Þar er tjörn með gosbrunn.
Í garðinum er leikkofi / útigeymsla.
Óklárað glerhýsi ca 12m2 í garði (hlið glerhýsisins liggur að bílskúrnum). *** Búið er að endurnýja hitaveitu og neysluvatnslagnir. Plastgluggar og útihurðar eru í öllu húsinu.
Húsið þarfnast spörslunar og málunar að utan. FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !
Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.
Heimasíða fasteignasölunnar: https://www.eignin.is/Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna:
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.
** Allar helstu fréttir úr sveitaveitarfélaginu má finna á www.hafnarfrettir.is