Hafnarberg 24 , 815 Þorlákshöfn
62.400.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
3 herb.
108 m2
62.400.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2002
Brunabótamat
53.900.000
Fasteignamat
51.450.000

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu:  Hafnarberg 24, Þorlákshöfn.  Mjög fallegt og afskaplega vel skipulagt, 79m2 endaraðhús ásamt 30m2 bílskúr.  Húsið er alveg einstaklega vel staðsett í rólegum botnlanga, rétt við leik-og grunnskóla sem og íþróttasvæði.
Húsið er laust við kaupsamning.

** Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar á [email protected] og í síma 483 3424 **


Húsið skiptist svo: 
* Rúmgóða forstofu með stórum skáp og flísum á gólfi. 
Forstofuhurðin er falleg, með gleri.
* 2 stór svefnherbergi.  Mjög góðir skápar eru í báðum herbergjum.  
* Stofa og eldhús eru í opnu rými.  
* Glæsileg innrétting úr mahony er í eldhúsi.    

* Utangengt er úr stofunni á sólpall sem snýr í há-suður. 
* Baðherbergi með fallegum skápum og sturtuklefa.  Flísar á gólfi.
* Allar innréttingar og fataskápar í húsinu eru mjög fallegar, úr mahony.   
* Mjög fallegar eins flísar eru á öllum gólfum í húsinu.
* Þvottahús er með hvítri innréttingu með vinnuborði og skolvask. Þvottavél og þurrkari fylgja.  Úr þvottahúsinu er innangegnt í bílskúrinn.
* Bílskúrinn er fullfrágenginn með aksturshurð með rafmagnsopnara.
* Bílaplan er malbikað.

* Í enda bílskúrsins er geymsla með flísum á gólfi.  Úr geymslunni er utangengt í garðinn.  
* Lítil útigeymsla er á verönd. 
* Allt tréverk að utan er nýmálað. 

**Sjón er sögu ríkari !


FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/


Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið.
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.