Núpahraun 6, með bílskúr , 815 Þorlákshöfn
79.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
3 herb.
139 m2
79.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
0
Fasteignamat
39.900.000

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir:  NÚPAHRAUN 6, ÞORLÁKSHÖFN, NÝTT, glæsilegt, endaraðhús með 2-3 svefnherbergjum og bílskúr.  Húsið er einstaklega skemmtilega skipulagt og snýr stofan í suður/vestur !  Húsið afhendist fullbúið við kaupsamning, með þökulagðri lóð og möl í plani. !
Loft eru upp tekin í húsinu, sem gerir það einstaklega bjart og skemmtilegt.  Fallegir gólfsíðir gluggar og rennihurð eru í stofu og eldhúsi.   
Möguleiki er á uppítöku á ódýrari eign.

(það athugist að myndir að innan eru úr húsi sem er spegilmynd þessa húss).

* Bóka má skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á [email protected] *

Húsið skiptist svo:
* Mjög rúmgott anddyri með flísum á gólfi og góðum skáp. 
* Rúmgott eldhús með fallegri innréttingu með eyju.  Innfelld uppþvottavél fylgir.  
* Stofa og eldhús eru í opnu rými.  Utangengt er úr stofunni í garðinn um rennihurð. Fallegt harðparket er á gólfi.  Fallegir gólfsíðir gluggar eru í stofu og eldhúsi sem hleypa fallegri birtu inn í rýmið. 
*  Stórt sjónvarpshol.
*  2 stór svefnherbergi með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum.  Á mjög einfaldan hátt er hægt að loka sjónvarpsholinu og bæta við svefnherbergi. 
** Loft eru upp tekin í húsinu og eru þau með innfelldri lýsingu.  
* Baðherbergi með fallegri innréttingu, spegli  og flísum á gólfi og veggjum og sturtu úr glerþili. 
* Þvottahús er inn af baðherbergi.  Flísar eru á gólfi og innrétting undir þvottavél og þurrkara.  Utangengt er úr þvottahúsinu. 
Á einfaldan hátt er hægt að loka milli baðherbergis og þvottahúss !

* Í loftum eru hvítar loftaþiljur.  Húsið er málað að innan í ljósum lit. 
* Allar innihurðar eru yfirfelldar, hvítar að lit.  
* Gólfhitalagnir eru í húsinu.  Stýringar og annar búnaður fylgir.
  
* Stór, fullfrágenginn bílskúr.  Epoxy verður sett á gólf.  Á einfaldan hátt er hægt að setja milliloft í bílskúrinn.

* Lóð verður þökulögð.
* Möl er í plani.   
*Sorptunnuskýli frágengið.  

Húsið er klætt að utan með dökkgráu bárustáli og lerki, dökkgráum gluggum og hurðum og dökkgráu þakstáli!

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 

Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
Verslun KRÓNUNNAR
Apótekarann.
Bakaríið Kaffiskjóðan (facebook: kaffiskjóðan)
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.

Veitingastaðina:
Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Caffe Bristól
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.

Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: www.hafnarfrettir.is
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.