Finnsbúð 19 , 815 Þorlákshöfn
74.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
150 m2
74.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2005
Brunabótamat
83.450.000
Fasteignamat
64.900.000

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu: Finnsbúð 19, Þorlákshöfn.  Einstaklega vel skipulagt endaraðhús með 3 rúmgóðum svefnherbergjum og áföstum bílskúr.  Húsið er staðsett í rólegum botnlanga, örstutt frá skóla- leikskóla og íþróttasvæði. 

HÚSIÐ ER LAUST TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING !

**Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á [email protected]**

Húsið skiptist svo: 
*  Forstofa með flísum á gólfi og stórum fataskáp    
*  3 rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfi.  Skápar eru í  öllum herbergjum.  
*  Mjög rúmgóð og björt stofa  með gluggum í hásuður.  Parket á gólfi.  
**  Úr stofunni er utangengt á stóran sólpall sem snýr í hásuður.
*  Eldhús með fallegri mahony  innréttingu og eyju. Parket á gólfi.
*  Fallegt baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, fallegri mahony innréttingu  og   baðkari með sturtuþili. 
*  Þvottahús með stórri innréttingu, flísar á gólfi.
*  Innangengt er í bílskúrinn úr forstofunni.
*  Geymsla er í enda bílskúrs.  
*  Möl er í plani.


FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/


Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitafélaginu má finna á www.hafnarfrettir.is

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.