Selvogsbraut 3 , 815 Þorlákshöfn
81.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
3 herb.
131 m2
81.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2003
Brunabótamat
81.600.000
Fasteignamat
67.000.000

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu:  Selvogsbraut 3, Þorlákshöfn.  Stórglæsilegt endaraðhús með 2 stórum svefnherbergjum ásamt bílskúr, stórri verönd með góðum skjólveggjum, nýlegu gróðurhúsi og nýjum heitum potti.  Upp tekin loft eru í öllu húsinu. 
Húsið er úr forsteyptum einingum, steinuðum með blágrýti. 


** Bóka má skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á [email protected] **

Eignin telur:

*  Mjög góða, flísalagða forstofu með stórum sérsmíðuðum skáp.  Úr forstofunni er innangengt í bílskúrinn. 
*  Stofa og eldhús eru í opnu rými.
*  Eldhúsið er afar fallegt, með sérsmíðaðri innréttingu með skrautskáp sem snýr inn í stofuna og lokar þannig vinnurými eldhússins frá stofunni. 
*  Glæsilega stofu með stórum gluggum sem hleypa mikilli birtu inn.  Fallegur útskotsgluggi setur sjarmerandi svip á rýmið.
*  Utangengt er úr stofu/eldhúsi á stóra verönd með gróðurhúsi og heitum potti. 
*  Mjög rúmgott sjónvarpshol. 
*  2 stór svefnherbergi.  Góðir fataskápar í báðum herbergjum og harðparket á gólf.  Úr hjónaherbergi er utangengt á verönd. 
*  Fallegt baðherbergi með sérsmíðaðri innréttingu og sturtu úr glerþili.  Flísar á gólfi og veggjum.   
*  Gott þvottahús með innréttingu með skolvask og vinnuborði.  Utangengt er úr þvottahúsinu.  
*  Eins flísar eru á öllum gólfum, nema svefnherbergjum. 
*  Góður bílskúr með flísum á gólfi.  Geymsluloft er yfir hluta bílskúrs.
*  Góð, flísalögð, geymsla er í enda bílskúrsins.  Geymsluloft er einnig yfir geymslunni. 

*  Lóðin er að mestu stór verönd með góðum skjólveggjum og nýjum, heitum potti.  

*  Á verönd er nýlegt gróðurhús úr gleri með opnanlegum þakgluggum.  Gróðurhúsið er hitað með rafmagnshiturum og er nýtt sem kósý setustofa. 

*   Bílaplanið er hellulagt og rúmar vel 2-3 bíla. 

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/
Sími 483 3424


Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Super 1 pizza (facebook:  super 1 pizza)
Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitafélaginu má finna á www.hafnarfrettir.is
  

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.