Reykjabraut 20, efri hæð, til leigu , 815 Þorlákshöfn
Tilboð
Hæð
5 herb.
235 m2
Tilboð
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
4
Inngangur
Sér
Byggingaár
1966
Brunabótamat
105.550.000
Fasteignamat
85.950.000

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir TIL LEIGU:  Reykjabraut 20, Þorlákshöfn, efri hæð.  Fallega 117m2 efri sérhæð með 4 stórum svefnherbergjum. 
Öll hæðin var endurnýjuð á árunum 2018 og 2019.     
Leigufjárhæð er 380.000,-kr. pr. mán með hita og rafmagni.
Íbúðin er laus 1.maí 2026.
3ja mánaða trygging skilyrði.


**Bóka má skoðun og fá allar nánari upplýsingar á [email protected] og í síma 483 3242**

Steyptur stigi liggur upp á Efri sérhæðina sem telur:
*  Flísalagða forstofu.  Fyrir framan forstofu er góður sérsmíðaður skápur frá Fagus.
*  Mjög fallegt eldhús með nýrri innréttingu með stórri eyju frá Fríform og vönduðum, nýjum heimilistækjum.
*  Rúmgóða stofu og borðstofu.  Utangengt er á góðar svalir (eftir að setja handrið).
*  4 góð svefnherbergi.  Í öllum herbergjum eru nýjir fataskápar frá Fagus.
*  Mjög fallegt, nýupptekið, baðherbergi með hvítri innréttingu, baðkari með sturtu-þili og flísum á gólfi og veggjum.   
*  Þvottahús með vinnuborði.  



FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/
Sími 483 3424


Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á www.hafnarfrettir.is

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.