Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu: Hesthúsið að Norðurtröð 22, Selfossi. Um er að ræða 5 hesta, 73m2 endabil með stóru sér-gerði með mulningi. Húsið er í eldri hluta hesthúsahverfisins og er uppgert að talsverðu leyti. Reiðhöll Hestamannafélagsins Sleipnis er við hliðina á húsinu.
** Hægt er að fá nánari upplýsingar og bóka skoðun í síma 483 3424 og á [email protected] **
Nánari lýsing:
* 3 eins hesta stíur. * 1 tveggja hesta stía. * Stíurnar eru úr galvarenseruðu járni og plastpanil. * Breiður fóðurgangur með gúmmímottum. * Rúmgóð hlaða. * Afstúkuð hnakkageymsla. * Rúmgóð og snyrtileg kaffistofa með innréttingu. * Húsið er hitað upp með varmadælu.
Húsið er klætt með bárujárni að utan. Búið er að endurnýja klæðningu að framanverðu. Á þaki er nýlegt bárujárn. Steypt stétt er framan við húsið. Hitakútur fyrir neysluvatn.
FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !