Hnjúkamói 9, íbúð 0201 , 815 Þorlákshöfn
59.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
80 m2
59.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2026
Brunabótamat
0
Fasteignamat
21.950.000

Fasteignasala Suðurlands kynnir:  Hnjúkamói 9, íbúð 0201, Þorlákshöfn.  Ný, 74,7m2 íbúð með 2 stórum svefnherbergjum, á 2.hæð í uppsteyptu fjölbýlishúsi auk 6,2m2 sér geymslu og svölum sem snúa í hásuður.  
Húsið er fyrsti áfangi svonefnds miðbæjarverkefnis sem verður allt hið glæsilegasta og er staðsett örstutt frá allri helstu þjónustu. 

ÍBÚÐIN GETUR FALLIÐ UNDIR HLUTDEILDARLÁN og verður tilbúin til afhendingar í  ágúst/september 2026.

** Hægt er að bóka einkaskoðun og fá allar nánari upplýsingar á [email protected] og í síma 483 3424 ** 


Eignin skiptist svo:
*  Anddyri með fataskáp
.  Hurðir, úthliðar og sökklar skáps eru hvítar að lit.
*  2 góð svefnherbergi, bæði með fataskápum.  Hurðir, úthliðar og sökklar fataskápa eru hvítar að lit. Stærðir skápa eru skv. teikningum.  
*  Rúmgott eldhús og stofu í opnu rými. 
*  Utangengt er úr stofunni á svalir sem snúa í hásuður
*  Eldhúsið er með fallegri innréttingu frá Arens (söluaðili, Ormsson).  Hurðir og forstykki eru hvít. Borðplötur eru plastlagðar í ljós gráum lit.   Eldhúsraftæki eru frá AEG. Ísskápur og uppþvottavél verða innbyggð.  Blöndunartæki eru frá Grohe.
*  Baðherbergi með fallegri innréttingu frá Arens.  Innrétting á baðherbergi afhendist með speglum, skápar eru í hvítum lit, borðplötur eru harðplast. Sturta er með sturtugleri.  Blöndunartæki á baði eru frá Grohe. Vegghengt salerni frá Laufen.  Sturta með hitastýrðum blöndunartækjum ásamt sturtustöng með haus og handúðara  
Flísalögn á baði mun ná upp í loft  á tvo veggi og gólf verður flísalagt.
* Þvottahús með flísum á gólfi.  
* Sér geymsla er í kjallara hússins.  Bæði stigi og lyfta eru í kjallarann.

*  Allar hurðir eru hvítar og yfirfelldar. Hurðar innan íbúðar verða án þröskulda.
*  Öll gólf nema á baðherbergi og þvottahúsi eru lögð vönduðu Quick step harðparketi frá Harðviðarval.  
*  Allar innréttingar eru frá Arens, (söluaðili er Ormsson ehf.) og eru í stöðluðum stærðum, skv. innréttingateikningum.
*  Ljós (kúplar) eru á baðherbergi, í þvottahúsi og í eldhúsi. Sjónvarps- og nettenglar í herbergjum.
*  Dyrasímar skv. teikningum, myndavélasími verður í íbúðinni.

*  Stór sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í húsinu.  Gólf í sameiginlegri geymslu og sér-geymslum verður lakkað.
*  Gólf í stigahúsi eru teppalögð.
 
Lóð:

*  Lóðarfrágangur verður í megindráttum skv. teikningum landslagsarkitekta.
*  Snjóbræðsla á göngustígum samkvæmt teikningu.
*  Bílastæði verða malbikuð og  afmörkuð með máluðum línum.   
*  Gert verður ráð fyrir að hægt verði að setja hleðslustöðvar við húsið, lagnaleið fyrir hendi.

* Á myndum í auglýsingu má sjá hugmynd að miðbæjarskipulaginu.  Hnjúkamói 9 er hús merkt A2 á teikningu **

3-d myndir af íbúð í auglýsingu eru til glöggvunar á útliti innréttinga en ekki skipulagi.


FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/ 
 
Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 

Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Super 1 pizza (facebook:  super 1 pizza)
Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitafélaginu má finna á www.hafnarfrettir.is og á www.hamingjuhofn.is
  

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.