Þelamörk 47c, miðjuraðhús , 810 Hveragerði
87.500.000 Kr.
Raðhús
3 herb.
129 m2
87.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2021
Brunabótamat
77.150.000
Fasteignamat
88.100.000

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir:  Þelamörk 47c, Hveragerði.  Fallegt, nýlegt, 4ra herbergja miðjuraðhús í botnlanga í grónu hverfi, miðsvæðis í Hveragerði. 
Stutt er í alla almenna þjónustu og útivist. 
HÚSIÐ ER LAUST VIÐ KAUPSAMNING !

*  Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar á [email protected] og í síma 483 3424 *

Eignin skiptist svo:
*  Anddyri. 
 
*  3 rúmgóð svefnherbergi.  Góðir fataskápar eru í barnaherbergjum.
**  Fataherbergi og baðherbergi eru inn af hjónaherbergi.  

*  Fallega stofu, borðstofu og eldhús í opnu rými þaðan sem utangengt er á verönd.
** Á tiltölulega einfaldan hátt er hægt að breyta borðstofunni í 4. svefnherbergið.   

**  Í eldhúsi er hvít innrétting með eyju, helluborði, bakaraofn, innbyggðum ísskáp með frysti og innbyggðri uppþvottavél.
*  2 baðherbergi eru í húsinu:
*  Aðalbaðherbergið er með fallegri hvítri innréttingu, flísum á gólfi og að hluta til á veggjum, sturtu úr glerþili.
* Minna baðherbergið er inn af hjónaherbergi.  Þar er hvít, lítil innrétting og sturta úr glerþili.  Flísar á gólfi og hluta veggja. 
*  Þvottahús og geymsla með flísum á gólfi.   
*  Geymsluloft er fyrir ofan anddyri.  
*  Á öllum gólfum, nema baðherbergi, er eins, fallegt harðparket.  Allar innihurðar eru hvítar, yfirfelldar. 
Innbyggð lýsing er í anddyri, gangi og alrými. Gólfhiti er í allri eigninni. Gólfhitastýringar fylgja ekki. 

*  Lóð er frágengin að framan með hellum og timburverönd. 
*  Bílaplan er malbikað.  Í rafmagnstöflu er gert ráð fyrir möguleika á hleðslustöðvum rafbíla. Lagnaleiðir er frá að bílastæði með tengimöguleika, ekki er lagt í. 
*  Að aftan er lóð frágengin með timburverönd og skjólveggjum milli húsanna. 

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/
Sími 483 3424

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.