Unubakki3b - 815 Þorlákshöfn

Hafðu samband

Skilaboð hafa verið send.

Fasteignasala Suðurlands ehf.

ALMENNT:

Fasteignaviðskipti snúast í mörgum tilfellum um aleigu fólks. Öryggi viðskiptanna skiptir því megin máli. Fasteignasalar eru starfstétt sem telst til opinberra sýslunarmanna samkvæmt íslenskum lögum. Þeim er með löggildingu veittur einkaréttur til að sinna tilteknum störfum, en á þá lögð rík ábyrgð. Almenningur, sem leitar eftir viðskiptum við þá, má treysta því að vinnubrögð þeirra séu fagleg og hvergi sé tekin nein óþarfa áhætta með hagsmuni umbjóðendanna. Til fasteignasala eru gerðar kröfur um menntun, auk þess sem gerðar eru kröfur til þess að þeir hafi tekið ábyrgðartryggingu eða lagt fram aðra tryggingu, sem dómsmálaráðherra metur gilda.

Söluumboð: í 9. grein laga um fasteigna , fyrirtækja og skipasölu kemur fram að fasteignasali skuli gera skriflegan samning við þann er til hans leitar um kaup eða sölu eignar eða aðara þjónustu. Samningurinn skal gerður áður en fasteignasali tekur til við starfann. Í samningi skal tilgreint hvaða verkefnum fasteigansali eigi að sinna, hver þóknun hans sé fyrir starfann eða hvernig hún skuli ákveðin og hvaða útlagðan kostnað viðsemjandinn eigi að greiða. Greina skal sérstaklega ef fasteignasali hefur einn rétt til sölu eignar og í hve langan tíma sá réttur hans á að standa.

Söluyfirlit: í 11. grein laga um fasteigna fyrirtækja og skipasölu segir að þegar fasteignasali hefur fengið eign til sölumeðferðar eða honum verið falið að ganga frá kauptilboði og/eða kaupsamningsgerð skuli hann semja rækilegt yfirlit yfir þau atriði sem máli geta skipt við sölu eignarinnar. Áður en tilboð er gert í eign skal væntanlegum tilboðsgjafa afhent söluyfirlitið og skal hann staðfesta móttöku þess með nafnritun sinni og dagsetningu.

Á heimasíðu Félags fasteignasala er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar fyrir kaupendur og seljendur fasteigna, https://ff.is/

Sjá staðsetningu á korti.