Hólmabrún 1 , 810 Hveragerði
73.400.000 Kr.
Einbýli
6 herb.
188 m2
73.400.000
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2024
Brunabótamat
0
Fasteignamat
12.250.000

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir:  Hólmabrún 1, Hveragerði. Nýtt, glæsilegt og einstaklega vel skipulagt 188m2 einbýlishús með bílskúr.  4 svefnherbergi og 2 baðherbergi eru í húsinu.
Húsið er klætt að utan með svartri ál-smábáru, gluggar og hurðar eru svartir úr ál/tré og ján á þaki er svart !  
*  Húsið snýr til þannig að aðkoma og útidyr snúa til suð-austurs og bakgarður snýr þá til norð-vestur
Húsið afhendist fokhelt 1. júní 2024.


Húsið telur skv. teikningu:
*   4 mjög rúmgóð svefnherbergi.
*  2 baðherbergi. Utangengt er af öðru baðinu.
*  Stóra stofu.  Úr stofunni er utangengt.
*  Sjónvarpshol.
*  Mjög rúmgott eldhús.
*  Þvottahús.
*  Forstofu.  Úr forstofunni er innangengt í bílskúrinn. 
*  Bílskúr.

Frágangur: 
Sökklar: Sökklar eru steyptir og einangraðir að innan.

Gólfplata: Gólfplata er steypt og einangruð með gólfhita í. Neysluvatnslagnir eru lagðar skv. verkfræðiteikningum, rör í rör.

Útveggir: Allir útveggir hússins eru úr timburgrind.

Húsin eru klætt að utan með litaðri smábáru frá Húsasmiðjunni (RAL 9005 - svart), og Lerki frá Efnissölunni ómeðhöndlað (gert er ráð fyrir að leifa lerkinu að veðrast og það verði endanlegt útlit).

Gluggar og hurðir: Allir gluggar og útihurðir eru úr ál/tré. Tvöfalt verksmiðjugler frá viðurkenndum framleiðanda er í húsinu og flyst ábyrgð þess áfram til kaupenda. Framleiðandi er Ideal Combi. Litur
að utan er RAL 9005 (svart).

Þak: Einhalla þak eru á húsinu og klætt með tvöföldu lagi af pappa.

Niðurföll og þakrennur: Þakniðurföll eru úr áli frá Hagblikk og rennur eru úr plasti frá Húsasmiðjunni.

Lóð: Lóð afhendist grófjöfnuð.

Breytingar:
Allar breytingar greiða kaupendur sérstaklega fyrir og skulu óskir um breytingar berast til stjórnar Byggingarfélagsins Hvata ehf tímanlega. Seljandi húsanna ber ekki ábyrgð á því ef slíkar breytingar
seinka afhendingu hússins.
Afhending hússins telst lokið þegar lyklaafhending og yfirferð eiganda og fulltrúa fyrirtækisins hefur farið fram.

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.