Elsugata 21, tilb. til afhendingar , 815 Þorlákshöfn
46.200.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
129 m2
46.200.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2024
Brunabótamat
0
Fasteignamat
6.620.000

Fasteignasala Suðurlands kynnir: Nýtt, fallegt, endaraðhús að Elsugötu 21, Þorlákshöfn.  Húsið er einstaklega vel skipulagt miðjuraðhús, með 3 stórum svefnherbergjum og mjög rúmgóðu alrými.   Húsið snýr í austur/vestur þannig að sólar nýtur í garði frá morgni til kvölds ! Húsið er staðsett í glænýju hverfi.  * Húsið afhendist fokhelt.
Húsið er klætt að utan með bárujárni og við í bland.   Þak er valmaþak.   Fallegir, gólfsíðir glugga eru í alrými !
*  Hægt er að fá húsið afhent bæði tilbúið til innréttinga sem og fullbúið:
Verð á tilbúnu til innréttinga: 60,7m
Verð á fullbúnu húsi er kr. 75,7m 

** Allar nánari upplýsingar má nálgast í síma 483 3424 og á [email protected] **

Húsið telur samkvæmt teikningu:
* Forstofu.
* 3 mjög rúmgóð svefnherbergi. 
* Stórt eldhús.
*  Eldhús og stofa eru  í opnu rými.  
Úr alrýminu er utangengt í garðinn. 
* Baðherbergi.   
Af baðherberginu er utangengt í garðinn þar sem gert er ráð fyrir heitum potti.
* Þvottahús.
* Góða geymslu. 

*  Lóðin er grófjöfnuð.


Frágangur utanhúss:
*  Húsið er byggt úr timbri og klætt að utan með ljósu bárujárni og með timbri í innskotum
*  Vindskeiðar eru úr áli.
*  Þakrennur og niðurföll verða frágengin.
*  Dökk gráir gluggar og hurðir verða fullfrágengir.



FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/


Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.

Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: w

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.